Svona lítur sjóndeildarhringurinn út frá hvaða stað sem er á Íslandi. Ofan á það bætast svo örnefni fjallanna, hæð og fjarlægð. Loksins er hægt að finna út hvað tindurinn þarna heitir! Í þessarri fyrstu útgáfu er hægt að skoða nöfn 4000 fjalla, jökla, hóla og hæða um allt land. Velja má staðsetningu handvirkt á korti eða nota sjálfvirka staðsetningu tækisins.